Barnafjölskyldur
Hverjir fá aðstoð?

Hverjir fá barnalífeyri?

Barnalífeyrir er greiddur með börnum yngri en 18 ára, ef annað hvort foreldra er látið eða er örorkulífeyrisþegi.

Greiðsla barnalífeyris er háð því að annað hvort foreldra þess eða barnið sjálft hafi búið hér á landi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram.

Séu báðir foreldrar látnir eða örorkulífeyrisþegar skal greiddur tvöfaldur barnalífeyrir.

Sömu réttarstöðu hafa stjúpbörn og kjörbörn þegar eins stendur á. Þó skal ekki greiddur barnalífeyrir vegna fráfalls eða örorku stjúpforeldris ef barnið á framfærsluskylt foreldri á lífi.

Tryggingastofnun getur ákveðið að greiða barnalífeyri með barni ellilífeyrisþega, svo og með barni manns sem sætir gæsluvist eða afplánar fangelsi, ef vistin hefur varað að minnsta kosti þrjá mánuði.

Tryggingastofnun greiðir barnalífeyri þegar skilríki liggja fyrir um að barn verði ekki feðrað.

Barnalífeyrir greiðist foreldrum barnanna ef þau eru á framfæri þeirra, eða þeim öðrum er annast framfærslu þeirra að fullu.

Ekki er greiddur barnalífeyrir vegna þeirra barna er njóta örorkulífeyris.

Greiddur er tvöfaldur barnalífeyrir fyrir hvert barn ef báðir foreldrar eru látnir eða lífeyrisþegar. Einnig er greiddur barnalífeyrir með ófeðruðum börnum. Ef foreldri er metið til 50-74% örorku er greidd viðbót við örorkustyrk vegna barna, sem er 75% af fjárhæð barnalífeyris.


 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica