Réttindi við andlát maka
Réttindi við andlát maka
Dánarbætur.
Greiddar eru bætur til þeirra sem verða ekkjur/ekklar innan 67 ára aldurs. Bæturnar eru greiddar í sex mánuði eftir andlát maka.
Ef greiðsluþegi er með barn yngra en 18 ára á framfæri eða við aðrar sérstakar aðstæður er Tryggingastofnun heimilt að greiða dánarbætur í að minnsta kosti 12 mánuði í viðbót. Þó ekki í lengri tíma en fjögur ár. Sótt er um dánarbætur með eyðublaðinu „Dánabætur".
Önnur réttindi.
Ekkill eða ekkja getur nýtt sér skattkort maka í níu mánuði eftri andlát hans. Hægt er að sækja um lækkun tekju- og eignaskatts. Nánari upplýsingar er að finna hjá skattstjórum á vefnum www.rsk.is.
Eftirlifandi maki getur einnig átt rétt á fyrirgreiðslu hjá stéttarfélögum, stuðningi frá félagsþjónustu sveitarfélaga eða tryggingafélögum.
