Fangelsisvist
Örorku- og ellilífeyrisþegar
Lífeyrisþegar sem dæmdir eru til fangelsisvistar halda greiðslum í 120 daga eftir að afplánun hefst. Eftir 120 daga samfellda fangelsisvist falla bætur niður frá fyrsta degi næsta mánaðar. Að afplánun lokinni fara bætur aftur í gang svo framarlega að mat sé enn í gildi.
Lífeyrisþegar sem falla af bótum vegna fangelsisvistar geta ekki sótt um framlengingu bóta.
Heimilt er hins vegar að sækja um vasapeninga frá Tryggingastofnun. Ýtarlegur rökstuðningur þarf að fylgja umsókn.
Fangi sem fær að ljúka afplánun á áfangaheimili, t.d. Vernd, fær bætur sínar í gang aftur svo framarlega að mat sé enn í gildi. Brjóti fangi af sér og fer aftur í fangelsi falla bætur niður frá fyrsta næsta mánaðar.
Endurhæfingarlífeyrisþegar
Endurhæfingarlífeyrisþegar sem dæmdir eru til fangelsisvistar falla strax af bótum frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að afplánun hefst. Endurhæfingarlífeyrir fer ekki í ganga aftur þó svo fangi fái að ljúka afplánun á t.d. Vernd eða útskrifist úr fangelsi. Til að fá endurhæfingarlífeyri aftur að lokinni afplánun þarf að sækja um að nýju.
Örorkustyrksþegar
Örorkustyrksþegar sem dæmdir eru til fangelsisvistar halda greiðslum í 120 daga eftir að afplánun hefst. Eftir 120 daga samfellda fangelsisvist falla bætur niður frá fyrsta degi næsta mánaðar.
Heimilt er hins vegar að sækja um vasapeninga frá Tryggingastofnun. Ýtarlegur rökstuðningur þarf að fylgja umsókn.
Fangi sem fær að ljúka afplánun á áfangaheimili, t.d. Vernd, fær örorkustyrk sinn í gang aftur svo framarlega að mat sé enn í gildi. Brjóti fangi af sér og fer aftur í fangelsi falla bætur niður frá fyrsta næsta mánaðar.
Aðrar upplýsingar
Heimilt er að greiða maka einstaklings sem sætir gæsluvarðhaldi eða er í fangelsi barnalífeyri með börnum hans svo framarlega að vistin hafi varað í a.m.k. þrjá mánuði.
Síða yfirfarin/ breytt 15. 09. 2011
