Endurhæfingarlífeyrir

Endurhæfingarlífeyrir

Heimilt er að greiða einstaklingum á aldrinum 18-67 ára endurhæfingarlífeyri í allt að 18 mánuði þegar ekki er ljóst hver starfshæfni verður til frambúðar í kjölfar sjúkdóma eða slysa.

Áður en til mats á endurhæfingarlífeyri kemur þarf umsækjandi að hafa lokið áunnum rétti sínum til veikindalauna frá atvinnurekanda, sjúkradagpeningum frá sjúkrasjóði stéttarfélags og eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum.

Ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi er hægt að lengja greiðslutímabilið um aðra 18 mánuði.

Hver eru meginskilyrði fyrir greiðslu endurhæfingarlífeyris?

Meginskilyrði fyrir veitingu endurhæfingarlífeyris er að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði. Tryggingastofnun metur hvort endurhæfingaráætlun telst fullnægjandi og hefur eftirlit með að henni sé framfylgt og önnur skilyrði uppfyllt. Athygli er vakin á að endurhæfingaráætlun skal vera unnin af lækni/meðferðaraðila eða ráðgjafa í samvinnu við umsækjanda. Eftirfylgni, stuðningur og eftirlit með framgangi endurhæfingar getur verið í höndum læknis/meðferðaraðila eða ráðgjafa sem jafnframt heldur utan um endurhæfinguna.

Þeir sem eiga rétt á þessum greiðslum að uppfylltum skilyrðum eru:

  • Einstaklingar sem ekki geta sinnt vinnu/námi vegna veikinda eða afleiðinga slysa.
  • Einstaklingar á aldrinum 18–67 ára.
  • Einstaklingar sem hafa verið búsettir á Íslandi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram eða í sex mánuði ef starfsorka var óskert er þeir tóku hér búsetu.
  • Einstaklingar sem hafa lokið áunnum veikindarétti sínum frá atvinnurekanda og greiðslum sjúkra- eða slysadagpeninga frá stéttarfélagi.
  • Einstaklingar sem ekki eru tryggðir skv. lögum um atvinnuleysistryggingar.
  • Einstaklingar sem eru í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði þar sem raunhæf áætlun um ferli endurhæfingar liggur fyrir.

Sömu reglur gilda um flest réttindi til tengdra bóta og hjá örorkulífeyrisþegum.

Undanskilið er:

  • Ekki er réttur á bifreiðakaupastyrkjum, bílalánum og niðurfelling á bifreiðagjöldum.
  • Sjúkrahúsvist í greiningar- og endurhæfingarskyni skemur en eitt ár skerðir ekki greiðslur.
  • Endurhæfingarlífeyrir er ekki greiddur úr landi.

Skerðing endurhæfingarlífeyris.

Endurhæfingarlífeyrir skerðist vegna búsetu erlendis í hlutfalli við búsetutíma. Allar skattskyldar tekjur skerða endurhæfingarlífeyri nema félagslegar bætur sveitarfélaga, fari tekjur umsækjanda yfir ákveðin tekjumörk.

Endurhæfingarlífeyrir fellur niður:

  • Þegar einstaklingur sinnir ekki fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.
  • Ef tekjur umsækjanda fara yfir ákveðin tekjumörk.
  • Þegar endurhæfingarmat fellur úr gildi.
  • Ef lífeyrisþegi verður 67 ára.
  • Ef umsækjandi á ekki lengur lögheimili á Íslandi.
  • Þegar einstaklingur hefur dvalið lengur en eitt ár á stofnun í greiningar og endurhæfingarskyni.
  • Við andlát lífeyrisþega. 

Athugið einnig önnur réttindi hjá Tryggingastofnun:

  • Tekjutryggingu
  • Heimilisuppbót
  • Uppbót á lífeyri
  • Mæðra- eða feðralaun
  • Barnalífeyri
  • Örorkuskírteini

Rétt er að benda lífeyrisþegum á afsláttum eða endurgreiðslum Sjúkratrygginga Íslands:

  • Afsláttarkort
  • Lyf
  • Læknishjálp og heilsugæsla
  • Hjálpartæki
  • Endurgeiðsla vegna mikils læknis- lyfja- og þjálfunarkostnaðar
  • Tannlækningar
  • Sjúkra-, iðju- og talþjálfun
Síða yfirfarin/breytt 18.06.2012

Almenn réttindi
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica