Hvernig er sótt um endurhæfingarlífeyri?

Hvernig er sótt um endurhæfingarlífeyri?

Þegar sótt er um endurhæfingarlífeyri þarf að skila inn eftirfarandi:

  • Umsókn um endurhæfingarlífeyri sem umsækjandi fyllir út. Umsóknin þarf svo að berast Tryggingastofnun, Laugavegi 114, 105 Reykjavík. Athugið að einnig þarf að fylla út tekjuáætlun, eins og ávallt þegar sótt er um lífeyrisgreiðslur.
  • Læknisvottorð sem læknir umsækjanda skrifar þar sem meðal annars koma fram upplýsingar um sjúkrasögu og lýsing á óvinnufærni umsækjanda.
  • Endurhæfingaráætlun frá lækni / meðferðaraðila eða ráðgjafa þar sem fram koma nákvæmar upplýsingar um innihald endurhæfingar og tímalengd ásamt staðfestingu á því hver muni halda utan um endurhæfinguna.

Mikilvægt er að starfshæfni sé alltaf höfð að leiðarljósi í endurhæfingu og endurhæfingaráætlun því byggð upp með áherslu á endurkomu á vinnumarkað.

Réttur umsækjanda til bóta er reiknaður út frá eigin tekjum. Athugið að fjármagnstekjur hjóna eru sameiginlegar tekjur. Lífeyrisgreiðslur eru skattskyldar á sama hátt og til dæmis launatekjur og greiðslur úr lífeyrissjóðum. Umsækjandi þarf að athuga hvort skipta þarf skattkorti, ef hann hefur tekjur víðar en frá Tryggingastofnun.

Umsóknarferli og afgreiðslutími

Miðað við að öll gögn hafi borist er afgreiðslutími endurhæfingarlífeyris (nýtt mat) um átta vikur. Afgreiðslutími umsóknar um endurmat er um fjórar vikur.

Gögn sem þurfa að hafa borist Tryggingastofnun:

  • Umsókn um endurhæfingarlífeyri
  • Tekjuáætlun
  • Læknisvottorð
  • Endurhæfingaráætlun
  • Staðfesting um búsetu ef viðkomandi hefur búið erlendis
Síða yfirfarin/breytt 22.02.2012

Almenn réttindi
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica