Andlát

Andlát

Eftirlifandi maki ef viðkomandi er lífeyrisþegi.

Við andlát maka breytast forsendur greiðslna að einhverju leyti og hugsanlega kann réttur til heimilisuppbótar að myndast. Eftirlifandi maka ber því að senda inn nýja tekjuáætlun og greina Tryggingastofnun frá breytingum á högum sínum. Þá ætti eftirlifandi maki að hafa í huga að hann hefur rétt til að nýta skattkort fráfallins maka í allt að níu mánuði eftir andlát, að andlátsmánuði meðtöldum.

  • Eftirlifandi maki þarf að gera nýja tekjuáætlun og sækja um heimilisuppbót (ef hann býr einn).
  • Þeir sem eru undir 67 ára geta sótt um dánarbætur.
  • Þeir sem eiga börn undir 18 ára aldri geta sótt um barnalífeyri
  • Þeir sem eiga tvö börn og fleiri geta sótt um mæðra-/feðralaun.

Uppgjör dánarbúa.

Samkvæmt íslenskum lögum verður við andlát einstaklings til sjálfstæður lögaðili, dánarbú, sem tekur tímabundið við öllum réttindum og skyldum hins látna. Ekki er um varanlega ráðstöfun að ræða og þarf í kjölfarið að skipta dánarbúinu.

Tryggingastofnun ber að gera upp greidd réttindi lífeyrisþega þegar endanlegar upplýsingar um tekjur liggja fyrir við álagningu skattayfirvalda. Sú skylda helst þó lífeyrisþegi falli frá og þá þarf stofnunin að grípa til sérstakra ráðstafana.

Langflestum dánarbúum lýkur með einkaskiptum. Við þá ráðstöfun gangast erfingjar undir óskipta ábyrgð á skuldbindingum búsins og sú ábyrgð helst eftir að skiptum er lokið. Ef inneign myndast hjá lífeyrisþega í uppgjöri að honum látnum þá eiga erfingjarnir lögmæta kröfu til hennar ef ekki liggur fyrir eldri krafa stofnunarinnar á hendur hinum látna. Ef skuld myndast í uppgjöri lífeyrisþegans að honum látnum þá á Tryggingastofnun lögmæta kröfu til hennar hjá dánarbúinu eða erfingjum hans eftir atvikum. Erfingjar bera óskipta ábyrgð á skuldbindingum dánarbúsins.

Þar sem nokkur tími getur liðið frá andláti lífeyrisþega og þar til unnt er að vinna lokauppgjör vegna andlátsársins þá býður Tryggingastofnun erfingjum að framkvæma bráðabirgðauppgjör vegna bótaréttar.

Dánarbætur og önnur réttindi.

Dánarbætur greiðast þeim sem á lögheimili hér á landi og verður ekkja/ekkill innan 67 ára aldurs. Skilyrði er að viðkomandi hafi verið í hjúskap við hinn látna eða í skráðri, óvígðri sambúð í eitt ár eða lengur við andlátið. Sama rétt hafa karl og kona sem átt hafa saman barn ef óvígð sambúð þeirra er skráð í Þjóðskrá. Almennt eru dánarbætur greiddar út í sex mánuði. Tólf mánaða dánarbætur greiðast í framhaldi af sex mánaða dánarbótum til þeirra sem hafa barn undir 18 ára aldri á framfæri eða vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna. Ef um sérstaklega erfiðar aðstæður er að ræða er heimilt að framlengja greiðslur dánarbóta um allt að 36 mánuði til viðbótar. 

Réttur við andláts foreldris.

Ívilnun vegna andláts frá skattinum.

Eftirlifandi maki getur sótt um lækkun á tekjuskattstofni hjá ríkisskattstjóra.

Síða yfirfarin/breytt 18.03.2013


Almenn réttindi
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica