Uppbót á lífeyri
Uppbótin er greidd vegna sérstakra útgjalda, til dæmis ef umsækjandi hefur mikinn lyfjakostnað, þarfnast umönnunar annars aðila, hefur kostnað af dvöl á sambýli eða vegna kaupa á heyrnartækjum.
Uppbætur eru vegna:
- Lyfja- og sjúkrakostnaðar
- Umönnunar í heimahúsi
- Dvalar á sambýli
- Rafmagnskostnaðar vegna notkunar á súrefnissíu
- Heyrnartækja
- Húsaleigu sem fellur utan húsaleigubóta
Uppbætur á lífeyri vegna lyfja- og sjúkrakostnaðar, umönnunar í heimahúsi, dvalar á sambýli, rafmagnskostnaðar vegna notkunar á súrefnissíu, heyrnartækja og húsaleigu sem fellur utan húsaleigubóta hafa ekki áhrif til lækkunar sérstakrar uppbótar til framfærslu frá og með 1. janúar 2011.
Sótt um uppbót á lífeyri
Fylla þarf út eyðublaðið „Umsókn um ellilífeyri og tengdar greiðslur", en á blaðinu kemur fram hvaða fylgigögnum þarf að skila með umsókn vegna uppbótarinnar.
Uppbót vegna kaupa/reksturs bifreiðar
Heimilt er að greiða lífeyrisþega uppbót vegna kaupa/reksturs bifreiðar, að uppfylltum nánari skilyrðum. Umsækjandi eða maki þarf að vera skráður eigandi bifreiðarinnar eða hafa bifreiðina á rekstrarleigu til langs tíma.
Skilyrði fyrir greiðslu uppbóta vegna kaupa á bifreið og/eða reksturs hennar er meðal annars að bifreið sé nauðsynleg bótaþega vegna hreyfihömlunar og að hann geti ekki komist af án uppbótarinnar.
