Aldraðir: Maka- og umönnunargreiðslur
Við sérstakar aðstæður er heimilt að greiða maka elli-, örorku-og endurhæfingarlífeyrisþega makabætur. Jafnframt er heimilt við sömu aðstæður að greiða öðrum sem halda heimili með lífeyrisþega umönnunarbætur.
Skilyrði er að viðkomandi eigi sama lögheimili og sá sem hann annast og sé ekki lífeyrisþegi. Sömu reglur gilda um þá sem eru með endurhæfingarlífeyri eða ellilífeyri sjómanna.
Makabótum er fyrst og fremst ætlað að bæta tekjumissi vegna lækkaðs starfshlutfalls umönnunaraðila þegar lífeyrisþegi þarf umönnun við athafnir daglegs lífs. Staðfesta þarf lækkað starfshlutfall.
Með umsókn þurfa að fylgja eftirtalin gögn:
- Læknisvottorð sem tilgreinir umönnunarþörf við daglegar athafnir
- Gögn frá vinnuveitanda sem staðfesta lækkað starfshlutfall eða starfslok
- Launaseðla þrjá síðustu mánuði fyrir dagsetningu umsóknar
- Ef um lækkun á reiknuðu endurgjaldi er að ræða þarf staðfestingu frá skattyfirvöldum
- Staðfesting á tekjuleysi frá ríkisskattstjóra ef um það er að ræða. Staðfestingin þarf að vera frá sama tíma og dagsetning umsóknar
- Staðfest skattframtal ef umsækjandi er ekki maki
Ef öll skilyrði eru uppfyllt eru réttindi ákvörðuð 1. næsta mánaðar eftir að öll gögn hafa borist.
Ef mánaðarlegar tekjur umsækjanda eru yfir 331.778 kr. á mánuði er ekki um greiðslur að ræða. Sama á við ef viðkomandi á eignir í peningum eða verðbréfum yfir 4.000.000 kr.
