Aldraðir: Réttindi við andlát maka
Lífeyrisréttindi
Til að tryggja að greiðslur verði sem réttastar ber eftirlifandi maka að senda inn nýja tekjuáætlun og greina frá breytingu á högum sínum. Þá ætti eftirlifandi maki að hafa í huga að hann hefur rétt til að nýta skattkort fráfallins maka í allt að níu mánuði eftir andlát, að andlátsmánuði meðtöldum.
Dánarbætur
Greiddar eru bætur til þeirra sem verða ekkjur/ekklar innan 67 ára aldurs. Bæturnar eru greiddar í sex mánuði eftir andlát maka.
Annað
Ekkill eða ekkja getur nýtt sér skattkort maka í níu mánuði eftri andlát hans. Hægt er að sækja um lækkun tekju- og eignaskatts. Nánari upplýsingar er að finna hjá skattstjórum.
Eftirlifandi maki getur einnig átt rétt á fyrirgeiðslu hjá stéttarfélögum, stuðningi frá félagsþjónustu sveitarfélaga eða tryggingafélögum.
Dánarbú
Samkvæmt íslenskum lögum verður við andlát einstaklings til sjálfstæður lögaðili, dánarbú, sem tekur tímabundið við öllum réttindum og skyldum hins látna.
Þar sem um tímabundið ástand er að ræða þarf að gera varanlegri ráðstöfun til lengri tíma og er það gert með því að skipta búinu.
