Tekjutrygging
Tekjutrygging
Fari tekjur lífeyrisþega og maka hans, að undanskildum greiðslum frá Tryggingastofnun, húsaleigubótum og fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, ekki yfir ákveðna upphæð, svokallað tekjumark (frítekjumark), á hann rétt á óskertri tekjutryggingu.
Skerðing á tekjutryggingu
Skerðingarhlutfall er 45%.
Ellilífeyrisþegi getur haft atvinnutekjur upp að 480.000 kr. ári áður en tekjur hans skerða tekjutryggingu og lífeyrissjóðstekjur upp að krónum 120.000.
Eftir 1. janúar 2009 hafa fjármagnstekjur að upphæð 98.640 kr. ekki áhrif á lífeyrisgreiðslur. Fjármagnstekjur um fram vega nú 100% við útreikning greiðslna.
