Réttindi vegna búsetu
Réttindi vegna búsetu
Ellilífeyrir
Til þess að eiga rétt á ellilífeyri verður einstaklingur að hafa verið búsettur hérlendis a.m.k. þrjú almanaksár á aldrinum 16-67 ára. Ellilífeyrir greiðist sem hlutfall af búsetutíma frá 16 ára til 67 ára aldurs.
Óskertur réttur miðast við 40 ára búsetu á Íslandi á aldrinum 16-67 ára. Þegar um skemmri búsetutíma er að ræða skerðist rétturinn hlutfallslega. Ef búsetutími hjóna er mislangur er heimilt að miða réttindi beggja við búsetutíma þess sem hefur haft lengri búsetu á Íslandi.
| Dæmi: |
|---|
| Einstaklingur bjó erlendis í 20 ár á aldrinum 16-67 ára. Tíminn frá 16-67 ára eru 51 ár. Hann hefur þá búið á Íslandi í 31 ár af 51 ári á tímabilinu. 31 ár deilt með 40 árum gera 77,5% búsetuhlutfall á Íslandi. Hann fær því 77,5% af fullum ellilífeyri. |
