Hvernig er sótt um ellilífeyri?
Tryggingastofnun sendir öllum sem verða 67 ára bréf þar sem bent er á mögulegan rétt til ellilífeyris. Bréfinu fylgja eyðublöð fyrir umsóknir og tekjuáætlanir. Þessi eyðublöð þarf að fylla út, undirrita og koma til Tryggingastofnunar eða umboða ef umsækjandi býr utan Reykjavíkur. Í framhaldi er lífeyrisþegum í Reykjavík boðið í viðtal í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar áður en þeir hefja töku lífeyris.
Sé gert ráð fyrir að vera áfram á vinnumarkaði eftir að 67 ára aldri er náð getur borgað sig að fresta því að sækja um ellilífeyri hjá Tryggingastofnun. Ellilífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót hækka þá um 0,5% fyrir hvern mánuð fram til 72 ára aldurs, eða að hámarki um 30%. Þeir sem fá örorkulífeyrisgreiðslur þegar þeir verða 67 ára þurfa ekki að sækja sérstaklega um ellilífeyri.
Sækja þarf um allar bætur frá Tryggingastofnun. Þó þurfa þeir sem eru með örorkulífeyrisgreiðslur þegar þeir verða 67 ára ekki að sækja sérstaklega um ellilífeyri.
Tekjuáætlun þarf að fylgja umsókn um ellilífeyri.
Umsóknarferli og afgreiðslutími
Afgreiðslutími ellilífeyris er um þrjár vikur miðað við að öll gögn hafi borist.
Gögn sem þurfa að hafa borist Tryggingastofnun:
- Umsókn um ellilífeyri
- Tekjuáætlun
Lífeyrisþegar sem vilja nýta skattkort sitt hjá Tryggingastofnun þurfa jafnframt að skila því.
