Ellilífeyrir

Ellilífeyrir

Réttur til ellilífeyris myndast við 67 ára aldur. Sá sem náð hefur þeim aldri og hefur búið hér á landi í minnst þrjú ár á aldrinum 16-67 ára getur átt rétt á greiðslu ellilífeyris.

Þeir sem hefja töku ellilífeyris geta í mörgum tilvikum einnig átt rétt á greiðslum úr einum eða fleiri lífeyrissjóðum en sækja þarf um þær greiðslur hjá viðeigandi sjóðum.

Við bendum lífeyrisþegum á að lesa vel efni hér á vefnum um uppbætur á lífeyri, áætlanir, uppgjör og innheimtu. Nauðsynlegt er að fylgjast vel með áætlunum til að upphæð útborgaðs lífeyris frá Tryggingastofnun sé sem réttastur.

Sjómannalífeyrir

Sá sem hefur stundað sjómennsku í 25 ár eða lengur getur átt rétt á ellilífeyri frá 60 ára aldri. Miðað er við að sjómaður hafi verið lögskráður á íslenskt skip eða skip gert út af íslenskum aðilum eigi færri en 180 daga að meðaltali í 25 ár.

Hvað geta lífeyrisþegar gert til að tryggja réttar greiðslur?

Það er á ábyrgð lífeyrisþega að Tryggingastofnun hafi allar nauðsynlegar upplýsingar svo að greiðsla bóta sé rétt. Tekjutengdar bætur eru greiddar til um 45.000 einstaklinga í hverjum mánuði, og verður starfsfólk stofnunarinnar að treysta því að viðskiptavinir fylgist með því að upphæð bóta sé í samræmi við þær tekjuáætlanir sem eru í gildi. Við bendum viðskiptavinum okkar á að:

  • Telja fram á fullnægjandi hátt og á réttum tíma.
  • Tilkynna Tryggingastofnun um breytingar sem verða á tekjum.
  • Fara vel yfir tekjuáætlun sem send er greiðsluþegum í lok hvers árs vegna næstkomandi árs.
  • Fara vel yfir greiðsluáætlun sem send er í byrjun árs og sýnir áætlaðar greiðslur á árinu.  Á greiðsluyfirliti koma fram allar forsendur sem greiðslur eru reiknaðar út frá.

Aldraðir
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica