Vasapeningar
Vasapeningar
Fullir vasapeningar frá 1. janúar 2012 eru 46.873 kr. á mánuði. Þeir eru tekjutengdir og eru reiknaðir út og greiddir á grundvelli tekjuáætlunar. 65% af tekjum koma til lækkunar á vasapeningum.
Ár hvert, að lokinni álagningu skattyfirvalda, eru þeir endurreiknaðir á sama hátt og lífeyrir. Ekki þarf að sækja sérstaklega um vasapeninga. Sömu reglur varðandi viðmiðunartekjur gilda um vasapeninga og um ellilífeyri.
Með tekjum er átt við allar skattskyldar tekjur, þar með taldar lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur. Greiðslur frá Tryggingastofnun eða félagsmálastofnunum og sveitarfélögum hafa ekki áhrif á vasapeninga.
Vasapeningar falla niður:
- Þegar tekjur eru yfir 72.112 kr. á mánuði.
- Þegar einstaklingur öðlast aftur rétt til elli/örorkulífeyris við útskrift af heimili.
- Þegar greiðsluþegi andast.
Síða yfirfarin/breytt 11.janúar 2012
