Um útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði
Um útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði
Um útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði
Við útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði eru bornar saman útreikningsreglur eins og þær giltu árið 2006, í mars 2008 og eins og þær eru á þessu ári. Sú leið er valin sem sýnir lægstu kostnaðarþátttöku. Slíkur samanburður fer fram til ársloka 2012.
Almennt
Eftirfarandi á við um útreikning á dvalarkostnaði óháð því hvaða útreikningsregla er notuð:
- Tekjur á núgildandi tekjuáætlun eru notaðar við útreikning á dvalarkostnaði.
- Eftirfarandi skattþrep gilda fyrir árið 2012 (m.v. hámarksútsvar):
- skattþrep; tekjur allt að 230.000 kr. á mán. (37,38%).
- skattþrep; tekjur frá 230.001 kr. til 704.367 kr. á mán. (40,28%).
- skattþrep; tekjur frá 704.367 kr. á mán. (46,28%).
- Persónuafsláttur árið 2011 er 46.532 kr.
- Fjármagnstekjuskattur er 20%.
- Fjármagnstekjuskattur reiknast af 70% leigutekna en allar leigutekjur teljast til tekna.
- 20/37 hluta af vannýttum persónuafslætti má ráðstafa upp í fjármagnstekjuskatt.
- Hámarks þátttaka í dvalarkostnaði er 311.741 kr. á mánuði.
- Eftirfarandi greiðslur teljast EKKI til tekna við útreikning á kostnaðarþátttöku:
- Bætur frá lífeyristryggingum almannatrygginga
- Séreignarlífeyrissparnaður.
- Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
- Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð.
- Bætur frá ríkjum sem Ísland hefur gert samninga við (64. gr. laga nr. 117/1993).
Útreikningur á þátttöku í dvalarkostnaði miðað við reglur 2012
- Af mánaðarlegum tekjum má halda eftir 65.005 kr. eftir skatt áður en til þátttöku í dvalarkostnaði kemur.
- Tekjur maka hafa engin áhrif fyrir utan að fjármagnstekjur teljast til sameiginlegra tekna.
- Frítekjumark fjármagnstekna er 98.640 kr. á ári (fjármagnstekjur umfram 98.640 kr. taldar til tekna).
- Fjármagnstekjur skiptast jafnt á milli hjóna og svo er 98.640 kr. frítekjumark dregið frá.
- Þegar um hjón er að ræða skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda fjármagnstekjur eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.
- Frítekjumark atvinnutekna er 480.000 kr. á ári.
- Ekkert frítekjumark er vegna lífeyrissjóðstekna.
Útreikningur á þátttöku í dvalarkostnaði m.v. reglur í mars 2008
- Af mánaðarlegum tekjum má halda eftir 59.311 kr. eftir skatt áður en til greiðslu dvalarkostnaðar kemur.
- Atvinnutekjur 70 ára og eldri teljast ekki til tekna.
Hjón
- Vægi eigin lífeyrissjóðstekna er 100%, lífeyrissjóðstekjur maka hafa ekki áhrif.
- Vægi eigin atvinnutekna er 75% og vægi atvinnutekna maka 25%.
- Frítekjumark atvinnutekna er 327.000 kr. á ári EÐA 60% af þeim taldar til tekna.
- Frítekjumark fjármagnstekna er 90.000 kr. á ári fyrir hvort um sig (fjármagnstekjur umfram 90.000 kr. taldar til tekna).
- Fjármagnstekjur skiptast til helminga milli hjóna, 90.000 kr. frítekjumark dregið svo frá, og er svo miðað við helminginn af þeirri fjárhæð fyrir hvort um sig (25% vægi).
- Þegar um hjón er að ræða skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda fjármagnstekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.
Einstaklingur
- Vægi lífeyrissjóðstekna er 100%.
- Vægi atvinnutekna er 100%.
- Frítekjumark atvinnutekna er 327.000 kr. á ári EÐA 60% af þeim taldar til tekna.
- Vægi fjármagnstekna er 50%.
- Frítekjumark fjármagnstekna er 90.000 kr. á ári (fjármagnstekjur umfram 90.000 kr. taldar til tekna) sem er dregið af fjármagnstekjum áður en þeim er skipt til helminga.
Útreikningur á þátttöku í dvalarkostnaði miðað við reglur 2006
- Af mánaðarlegum tekjum má halda eftir 50.112 kr. eftir skatt áður en til greiðslu dvalarkostnaðar kemur.
- Engin frítekjumörk á tekjum.
- Þegar um hjón er að ræða skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda fjármagnstekjur eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.
Hjón – bæði á öldrunarstofnun/sjúkrastofnun (báðir aðilar hafa misst lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun vegna dvalar á öldrunar- eða sjúkrastofnun)
- Miðað er við helming af samanlögðum tekjum (á ekki við fjármagnstekjur).
- Vægi fjármagnstekna er ¼ fyrir hvort um sig.
Hjón – annað á sjúkrastofnun (maki hefur ekki misst greiðslur frá Tryggingastofnun vegna dvalar á öldrunar- eða sjúkrastofnun)
- Ef maki hefur ekki misst greiðslur frá TR vegna dvalar á öldrunar- eða sjúkrastofnun þá er stuðst við helming af tekjum viðkomandi (á ekki við fjármagnstekjur).
- Vægi fjármagnstekna er 1/8.
Þátttaka í dvalarkostnaði reiknast skv. Lögum um málefni aldraðra og Reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.
Síða yfirfarin/breytt 11. janúar 2012
