Þátttaka í dvalarkostnaði
Sjúkrastofnun
Sjúkrastofnun
Ef lífeyrisþegi er orðinn 67 ára getur hann þurft að taka þátt í dvalarkostnaði sínum á viðkomandi sjúkrastofnun þegar lífeyrisgreiðslur frá TR falla niður vegna sjúkrahúsdvalar.
Þátttakan er tekjutengd og er reiknuð út á grundvelli tekjuáætlunar.
Ef mánaðartekjur lífeyrisþega eru yfir 65.005, eftir skatta, þá tekur hann þátt í dvalarkostnaði með þeim tekjum sem umfram eru. Greiðsluþátttaka verður þó aldrei hærri en 311.741 kr. á mánuði og hefst hún frá sama tíma og lífeyrisgreiðslur frá TR falla niður.
Tryggingastofnun reiknar út þátttökuna og upplýsir viðkomandi einstakling og sjúkrastofnun um hana en hefur að öðru leyti engin afskipti af innheimtu hennar.
Sömu reglur varðandi viðmiðunartekjur gilda við útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði og um tekjutryggingu.
Síða yfirfarin/breytt 11. janúar 2012
