Dagpeningar utan stofnunar

Dagpeningar utan stofnunar

Ef lífeyrisþegi dvelur utan stofnunar í meira en 24 klukkustundir í senn en útskrifast samt ekki er heimilt að greiða honum dagpeninga þann tíma. Greitt er að hámarki fyrir 8 sólarhringa í mánuði. Fullir dagpeningar utan stofnunar eru 2.551 kr. á dag og eru þeir tekjutengdir. Aðeins þeir sem fá greidda vasapeninga geta sótt um dagpeninga utan stofnunar. Sömu reglur varðandi viðmiðunartekjur gilda um dagpeninga utan stofnunar og um vasapeninga.

Hvernig er sótt um dagpeninga utan stofnunar?

Starfsmenn sjúkrastofnunar sækja um dagpeninga utan stofnunar fyrir viðkomandi. Greiðslur fara fram mánaðarlega.

Síða yfirfarin/breytt 11. janúar 2012

 


Aldraðir
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica