Útreikningur á þátttöku í dvalarkostnaði árið 2011

Um útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði árið 2011

Um útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði árið 2011

Við útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði eru bornar saman útreikningsreglur eins og þær giltu árið 2006, í mars 2008 og eins og þær eru á þessu ári. Sú leið er valin sem sýnir lægstu kostnaðarþátttöku. Slíkur samanburður fer fram til ársloka 2011.

Almennt

Eftirfarandi á við um útreikning á dvalarkostnaði óháð því hvaða útreikningsregla er notuð:

  • Tekjur á núgildandi tekjuáætlun eru notaðar við útreikning á dvalarkostnaði.
  • Eftirfarandi skattþrep gilda fyrir árið 2011 (m.v. hámarksútsvar):
  1. skattþrep; tekjur allt að 209.400 kr. á mán. (37,38%).
  2. skattþrep; tekjur frá 209.401 kr. til 680.550 kr. á mán. (40,28%).
  3. skattþrep; tekjur frá 680.551 kr. á mán. (46,28%).
  • Persónuafsláttur árið 2011 er 44.205 kr.
  • Fjármagnstekjuskattur er 20%.
  • Fjármagnstekjuskattur reiknast af 70% leigutekna en allar leigutekjur teljast til tekna.
  • 18/37 hluta af vannýttum persónuafslætti má ráðstafa upp í fjármagnstekjuskatt.
  • Hámarks þátttaka í dvalarkostnaði er 293.247 kr. á mánuði.
  • Eftirfarandi greiðslur teljast EKKI til tekna við útreikning á kostnaðarþátttöku:
  1. Bætur frá lífeyristryggingum almannatrygginga
  2. Séreignarlífeyrissparnaður.
  3. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
  4. Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð.
  5. Bætur frá ríkjum sem Ísland hefur gert samninga við (64. gr. laga nr. 117/1993).

 Útreikningur á þátttöku í dvalarkostnaði miðað við reglur 2011 

  • Af mánaðarlegum tekjum má halda eftir 65.005 kr. eftir skatt áður en til þátttöku í dvalarkostnaði kemur.
  • Tekjur maka hafa engin áhrif fyrir utan að fjármagnstekjur teljast til sameiginlegra tekna.
  • Frítekjumark fjármagnstekna er 98.640 kr. á ári (fjármagnstekjur umfram 98.640 kr. taldar til tekna).
  • Fjármagnstekjur skiptast jafnt á milli hjóna og svo er 98.640 kr. frítekjumark dregið frá.
  • Þegar um hjón er að ræða skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda fjármagnstekjur eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.
  • Frítekjumark atvinnutekna er 480.000 kr. á ári.
  • Ekkert frítekjumark er vegna lífeyrissjóðstekna.

 Upplýsingar um útreikningsreglur áranna 2006 og 2008

Síða yfirfarin/breytt 11. janúar 2012


Aldraðir
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica