Þátttaka í dvalarkostnaði

Þátttaka í dvalarkostnaði

Íbúar geta þurft að taka þátt í dvalarkostnaði sínum vegna varanlegrar búsetu á dvalar- eða hjúkrunarheimili. Þátttakan er tekjutengd og er reiknuð út á grundvelli tekjuáætlunar.

Á árinu 2012 gildir að ef mánaðartekjur íbúa eru yfir 65.005 kr. á mánuði, eftir skatta, þá tekur hann þátt í dvalarkostnaði með þeim tekjum sem umfram eru. Greiðsluþátttaka verður þó aldrei hærri en 311.741 kr. á mánuði. Ef íbúi tekur þátt í dvalarkostnaði byrjar hann að greiða frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að búseta hefst. Sama aðferð er notuð við útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði hvort sem um er að ræða búsetu á dvalar- eða hjúkrunarheimili.

Aðeins íbúar 67 ára og eldri taka þátt í dvalarkostnaði. Heimilið innheimtir ávallt hlut íbúa í dvalargjaldi. Sömu reglur varðandi viðmiðunartekjur gilda við útreikning á þátttöku íbúa í dvalarkostnaði og um tekjutryggingu.

Uppgjör á þátttöku í dvalarkostnaði

Að lokinni álagningu skattyfirvalda ár hvert er þátttakan gerð upp hjá íbúum í dvalarrýmum. Eru þá bornar saman tekjur á tekjuáætlun sem þátttakan var reiknuð út frá og endanlegar tekjuupplýsingar í skattframtali. Tryggingastofnun gerir þátttökuna upp við heimilin sem sjá svo um að gera upp við íbúa.

Komi í ljós að þátttakan var of lág innheimtir heimilið það sem vantar upp á. Komi hins vegar í  ljós að þátttakan var of há endurgreiðir heimilið inneignina.

Útreikningur á þátttöku í dvalarkostnaði árið 2011

Síða yfirfarin/breytt 11. janúar 2012

Aldraðir
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica