Barnalífeyrir

Barnalífeyrir

Ellilífeyrisþegar geta átt rétt á barnalífeyri ef þeir eru með börn undir 18 ára aldri á framfæri eða eru meðlagsskyld með börnum sínum.

Annað hvort foreldri barnsins eða barnið sjálft verður að hafa búið hér á landi í að minnsta kosti þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram.

Barnalífeyrir greiðist foreldrum barnanna ef þau eru á framfæri þeirra, eða þeim öðrum er annast framfærslu þeirra að fullu.

  • Séu báðir foreldrar lífeyrisþegar eða látnir skal greiddur tvöfaldur barnalífeyrir.
  • Sömu réttarstöðu hafa stjúpbörn og kjörbörn þegar eins stendur á. Þó skal ekki greiddur barnalífeyrir vegna fráfalls eða örorku stjúpforeldris ef barnið á framfærsluskylt foreldri á lífi.
  • Ekki er greiddur barnalífeyrir vegna þeirra barna er njóta örorkulífeyris.
  • Barnalífeyrir er ekki tekjutengdur.
  • Barnalífeyrir fellur niður ef ellilífeyrir fellur niður vegna tekna.

Ef lífeyrisþegi er meðlagsskyldur þá skuldajafnast barnalífeyrir á móti meðlagsgreiðslu.

Hvernig er sótt um barnalífeyri?

Ellillífeyrisþegar sem sækja vilja um barnalífeyri gera það á eyðublaðinu Umsókn um ellilífeyri og tengdar greiðslur. Einnig má nálgast það í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar að Laugavegi 114, 105 Reykjavík,  í umboðum utan Reykjavíkur og hér á vefnum.

Síða yfirfarin/breytt 14.09.2012

  • Greiðslur vegna ungmenna 18-20 ára


Aldraðir
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica