Barnalífeyrir
- Greiðsla barnalífeyris er háð því að annað hvort foreldra þess eða barnið sjálft hafi búið hér á landi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram.
- Séu báðir foreldrar látnir eða lífeyrisþegar skal greiddur tvöfaldur barnalífeyrir.
- Sömu réttarstöðu hafa stjúpbörn og kjörbörn þegar eins stendur á. Þó skal ekki greiddur barnalífeyrir vegna fráfalls eða örorku stjúpforeldris ef barnið á framfærsluskylt foreldri á lífi.
- Tryggingastofnun getur ákveðið að greiða barnalífeyri með barni ellilífeyrisþega, svo og með barni manns sem sætir gæsluvist eða afplánar fangelsi, ef vistin hefur varað að minnsta kosti þrjá mánuði.
- Tryggingastofnun greiðir barnalífeyri þegar skilríki liggja fyrir um að barn verði ekki feðrað.
- Barnalífeyrir greiðist foreldrum barnanna ef þau eru á framfæri þeirra, eða þeim öðrum er annast framfærslu þeirra að fullu.
- Ekki er greiddur barnalífeyrir vegna þeirra barna er njóta örorkulífeyris.
- Barnalífeyrir er ekki tekjutengdur og fellur ennfremur ekki niður þó svo lífeyrir falli niður vegna tekna.
Hvernig er sótt um barnalífeyri?
Framfærendur sækja um barnalífeyri á eyðublaðinu „Meðlag, bráðabirgðameðlag, mæðralaun og barnalífeyrir" einnig má nálgast það í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar að Laugavegi 114, 150 Reykjavík, í umboðum utan Reykjavíkur og hér á vefnum.
Barnalífeyrir vegna skólanáms eða starfsþjálfunar
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar getur verið greiddur til ungmennis á aldrinum 18-20 ára sem er búsett á Íslandi ef annað foreldri eða báðir eru látnir; ennfremur ef annað foreldri eða báðir eru lífeyrisþegar.
Eingöngu er greiddur einfaldur barnalífeyrir.
Hver eru skilyrði fyrir greiðslu?
Skilyrði er að ungmenni sé í fullu námi í viðurkenndum framhaldsskóla og að námið sé hans aðalstarf. Fullt nám er um 17 einingar á önn en heimilt er að víkja frá þessu skilyrði ef um er að ræða hægfara nám eða sérstaka erfiðleika nemandans. Nám þarf að taka að minnsta kosti sex mánuði ár hvert. Ef um er að ræða óreglulegt nám eða námskeið sem jafngildir viðurkenndu námi er námstíminn reiknaður í kennslustundafjölda á almanaksárinu og telst þá sex mánaða nám samsvara 624 kennslustundum. Brot úr mánuði telst heill mánuður. Hægt er að fresta afgreiðslu menntunarbarnalífeyris þar til sex mánaða námstíma er náð.
Ef nemandi er einnig í launuðu starfi eða launuðu iðnnámi fellur heimild til þessara greiðslna niður þegar mánaðartekjur eru hærri en sem nemur sjöföldum barnalífeyri. Ef ekki er um iðnnám að ræða þarf að færa sönnun á að launað starf sé unnið að jafnaði utan hefðbundins skólatíma. Menntunarbarnalífeyrir er aðeins greiddur ef umsækjandi á lögheimili á Íslandi.
Hvernig er sótt um barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar?
Ungmenni sækir sjálft um á þessu eyðublaði sem einnig má nálgast, í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, eða umboðum hennar um land allt.
Hvaða gögnum þarf að skila inn?
- Staðfestingu á skólavist. Upplýsingar um einingafjölda náms þarf að koma fram nema ef um bekkjarkerfi sé að ræða þá þarf aðeins staðfestingu á skólavist.
- Með umsókn þarf einnig staðfest ljósrit af skattframtali. Ef um háar tekjur er að ræða þarf að senda staðfestingu atvinnurekanda um vinnutilhögun.
- Þegar komið er með vottorð um skólavist v/framlengingar þarf ekki að skila inn nýrri umsókn heldur er nóg að senda staðfest gögn frá skóla um námsframvindu síðustu annar og skólavist á komandi önn. Einnig þarf að skila skattframtali á haustönnum v/framlengingar. Hægt er að senda skattframtal rafrænt frá rsk.
- Hafi sýslumaður hafnað úrskurði um meðlag vegna efnaleysis eða ef ekki hefur tekist að hafa upp á foreldri er sá úrskurður einnig sendur með umsókn.
- Hægt er að sækja um undanþágu frá fullu námi ef nemandi getur ekki stundað fullt nám. Staðfesting frá námsráðgjafa þarf að fylgja með.
- Leggja þarf fram dánarvottorð ef sótt er um vegna andláts foreldris og hinn látni hefur ekki verið búsettur hér á landi og gögn ekki verið lögð fram áður t.d. vegna barnalífeyris til foreldris fram að 18 ára aldri barns.
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar fellur niður:
- Þegar viðkomandi uppfyllir ekki lengur skilyrði um skólagöngu.
- Ef ungmennið verður örorkulífeyrisþegi.
- Ef ungmennið flytur úr landi.
- Ef foreldri er ekki lengur lífeyrisþegi.
- Ef tekjur eru yfir viðmiðunarmörkum.
