Útfylling einstakra tekjuliða
1. Atvinnutekjur
1.1 Launatekjur
Hér eru færðar heildartekjur launa, að meðtalinni yfirvinnu og orlofi og hvers konar greiðslum, svo sem fæðingarorlofsgreiðslum, dagpeningum, bifreiðastyrkjum og öðrum hlunnindum. Bifreiðastyrki og dagpeninga skal tilgreina að frádregnum konstaði sem heimilt er að draga frá á skattframtali. Heildartekjur eru tekjur fyrir skatta og áður en iðgjöld í lífeyrissjóð eru dregin frá.
1.2. Reiknað endurgjald
Hér eru færð reiknuð laun vegna eigin atvinnurekstrar.
1.3. Atvinnuleysisbætur
Hér er færð áætluð upphæð atvinnuleysisbóta á næsta ári.
1.4. Hagnaður af atvinnustarfsemi
Hér er færður áætlaður rekstrarhagnaður ársins af eigin atvinnustarfsemi.
1.5. Iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar
Hér færast inn áætlaðar skyldubundnar greiðslur í lífeyrissjóði. Að hámarki má skrá 4% af launum, reiknuðu endurgjaldi og atvinnuleysisbótum skv. liðum 1.1, 1.2 og 1.3.
1.6 Iðgjald í séreignasjóð til frádráttar
Hér færast áætlaðar greiðslur í séreignasjóði, sem heimilt er að draga frá skattstofni. Að hámarki má skrá 4% af launum, reiknuðu endurgjaldi og atvinnuleysisbótum skv. liðum 1.1, 1.2 og 1.3.
2. Lífeyrissjóðstekjur
2.1. Lífeyrissjóðstekjur
Með lífeyrissjóðstekjum er átt við tekjur úr lífeyrissjóðum vegna ellilífeyris, örorkulífeyris, makalífeyris og barnalífeyris. Hér eru færðar heildartekjur ársins úr lífeyrissjóðum, eða samanlagðar tekjur úr öllum lífeyrissjóðum.
2.2 Séreignasparnaður
Hér er reitur fyrir úttekt á séreignasparnaði. Séreignasparnaður hefur ekki áhrif á útreikning á örorkulífeyri, aldurstengda örorkuuppbót, tekjutryggingu og heimilisuppbót.
Það getur verið að á forprentuðum tekjuáætlunum sé séreignasparnaður samanlagður með öðrum lífeyrissjóðsgreiðslum og þarf þá að draga hann frá til aðgreiningar frá öðrum lífeyrissjóðsgreiðslum.
2.3. Uppbót á ellilífeyri frá RSK
Hér er reitur fyrir uppbót á lífeyri sem Ríkisskattstjóri greiðir þeim sem hafa lífeyrissjóðsgreiðslur undir tilteknu lágmarki.
3. Aðrar tekjur
3.1. Aðrar tekjur
Hér eru færðar aðrar tekjur en þær sem nefndar eru hér að ofan, svo sem greiðslur úr sjúkrasjóðum, styrkir frá stéttarfélögum og greiðslur frá tryggingafélögum.
3.2. Áætlaðar tekjur frá RSK
Ef tekjuáætlun Tryggingastofnunar byggir á áætluðum tekjustofni skattyfirvalda birtist sú fjárhæð í þessum reit. Þeirri tölu er aðeins hægt að breyta ef fyrir liggur staðfesting á að framtali hafi verið skilað vegna fyrra árs.
4. Fjármagnstekjur
Með fjármagnstekjum er alltaf átt við heildartekjur ársins. Fjármagnstekjur hjóna og sambúðarfólks eru skráðar sameiginlega. Athuga þarf að fjármagnstekjur eru í eðli sínu sveiflukenndar, einkum þeagr um er að ræða sölu hlutabréfa eða annarra eigna. Því þarf að vanda til áætlunar þessara tekna. Einnig er mikilvægt að láta Tryggingastofnu vita ef síðar verða breytingar á fjármagnstekjum frá því sem nú er áætlað. Athugið að skrá skal heildarupphæð fjármagnstekna þrátt fyrir að aðeins helmingur þeirra komi til útreiknings greiðslna.
4.1 Vextir og verðbætur
Hér eru færðir áætlaðir vextir og verðbætur af bankainnistæðum.
4.2. Arður
Hér er færður áætlaður arður af hlutabréfum og stofnsjóðum samvinnufélaga.
4.3 Leigutekjur
Hér eru færðar hvers konar leigutekjur sem áætlað er að muni falla til á árinu.
4.4. Söluhagnaður
Hér er færður allur áætlaður skattskyldur söluhagnaður. Reynslan sýnir að algengt er að þessi tekjuliður sé vanáætlaður og það valdi ofgreiðslu lífeyrisgreiðslna. Því er mikilvægt að huga vel að útfyllingu þessa reits.
