Tekjuáætlun

Tekjuáætlun

Tekjuáætlun er forsenda greiðslna frá Tryggingastofnun. Til að lífeyrisþegar fái þær greiðslur sem þeim ber þurfa fullnægjandi upplýsingar um tekjur þeirra að liggja fyrir.

Lífeyrisþegar eða fjárhaldsmenn þeirra hafa besta yfirsýn yfir árstekjur og því er nauðsynlegt að þeir fari yfir tekjuáætlanir. Í byrjun árs er öllum lífeyrisþegum send tillaga að tekjuáætlun næsta árs sem þeir þurfa að fara yfir og leiðrétta ef þörf þykir.

Það er fyrst og fremst í þágu lífeyrisþega að leiðrétta tekjuáætlun ef hún er ekki rétt. Með vandaðri tekjuáætlun er hægt að koma í veg fyrir rangar greiðslur sem þarf að leiðrétta síðar. Greiðslur eru endurreiknaðar og leiðréttar þegar álagning skattayfirvalda liggur fyrir.

Í tekjuáætluninni eru tekjur forskráðar og er tillagan byggð á skattframtali fyrra árs, staðgreiðsluskrá RSK og eftir atvikum síðustu gildandi tekjuáætlun. Forskráðar tekjur eru hækkaðar samkvæmt tillögum stjórnvalda um almennar vísitöluhækkanir.

Fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir eftirfarandi hækkunum/lækkunum á forskráðum tekjum:

  • Launatekjur og lífeyrissjóðstekjur hækka um 2%
  • Fjármagnstekjur lækka um 30% nema leigutekjur hækka um 8%.

Sérstök athygli er vakin á að lífeyrisþegar bera sjálfir alla ábyrgð á að tekjuáætlun þeirra sé rétt. Þeim er skylt samkvæmt lögum að láta stofnunina vita af tekjubreytingum hjá sér. Ávallt þarf að skrifa undir tekjuáætlun.

Tekjuáætlun á vefnum

Rafræn þjónusta Tryggingastofnunar kallast Tryggur, og er aðgengi að henni á upphafssíðu vefs Tryggingastofnunar, tr.is og á tryggur.is.

Þar er hægt að sjá greiðsluáætlanir, breyta og skila tekjuáætlunum, fá bráðabirgðaútreikning á réttindum og sækja greiðsluseðla.

Við innskráningu þarf að slá inn kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra, þann sama og notaður er við framtalsgerð. Reikna má með að stór hluti viðskiptavina sjái sér hag í að nýta rafræna þjónustu Tryggingastofnunar og fái þannig skjóta og góða þjónustu. Aðrir munu jafnframt fá betri þjónustu, því starfsfólk hefur rýmri tíma fyrir hina sem ekki kæra sig um eða geta notfært sér rafrænu leiðina.

Hér koma leiðbeiningar bæði á íslensku og ensku, um hvernig þeir sem eru búsettir erlendis geta fengið veflykla:

Veflyklar-leiðbeiningar fyrir þá sem búa utan Íslands

Veflyklar (password) guide for those living abroad


Aldraðir
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica