Greiðsluáætlun
Greiðsluáætlun
Greiðsluáætlun byggir á upplýsingunum sem koma fram í tillögu að tekjuáætlun. Þar kemur fram, sundurliðað á mánuði og eftir greiðslutegundum, hvaða mánaðargreiðslur lífeyrisþegar eiga von á að fá miðað við óbreytta tekjuáætlun.
Ef lífeyrisþegar breyta tekjuáætlun fá þeir senda nýja greiðsluáætlun sem miðast við nýjar upplýsingar. Greiðsluáætlunina er gott að geyma á vísum stað. Mánaðarlegir seðlar með upplýsingum um greiðslur Tryggingastofnunar birtast á rafrænum þjónustusíðum á vefnum tr.is
Lífeyrisþegar geta einnig skoðað tekjur sínar í staðgreiðsluskrá RSK til að tekjuáætlun sé sem réttust.
