Áramót - Græna umslagið
Áramót – Græna umslagið
Græna umslagið er sent til lífeyrirsþega um hver áramót. í því er tekjuáætlun fyrir árið og greiðsluáætlun sem miðast við upplýsingarnar í tillögunni.
- Tillaga að tekjuáætlun er byggð á fyrirliggjandi upplýsingum um tekjur liðins árs skv. staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra eða þeirri tekjuáætlun sem lífeyrisþegar hafa sjálfir skilað til að tilkynna um breyttar aðstæður. Lífeyrisþegar bera ábyrgð á að yfirfara tillöguna sem kemur frá Tryggingastofnun og leiðrétta ef þeir telja ástæðu til. Hægt er að leiðrétta tekjuáætlun oft á ári.
- Greiðsluáætlun byggir á upplýsingunum sem koma fram í tillögu að tekjuáætlun. Þar kemur fram, sundurliðað á mánuði og eftir greiðslutegundum, hvaða mánaðargreiðslur lífeyrisþegar eiga von á að fá miðað við óbreytta tekjuáætlun. Ef lífeyrisþegar breyta tekjuáætlun fá þeir senda nýja greiðsluáætlun sem miðast við nýjar upplýsingar. Greiðsluáætlunina er gott að geyma á vísum stað. Mánaðarlegir seðlar með upplýsingum um greiðslur Tryggingastofnunar birtast á Mínum síðum.
- Kröfuyfirlit fylgir með eftir atvikum. Það sýnir skuldastöðu um áramót.
Síða yfirfarin/breytt 13. janúar 2012
