Áætlanir, endurreikningur og innheimta
Tekjuáætlun
Skattskyldar tekjur lífeyrisþega ráða fjárhæð lífeyris og tengdra greiðslna. Þegar sótt er um lífeyri þarf að skila tekjuáætlun, sem er áætlun umsækjanda um hversu háar tekjur hann muni hafa á árinu. Á grundvelli þessarar áætlunar eru greiðslur ársins reiknaðar. Mikilvægt er að vanda þessa áætlun vegna þess að greiðslur hvers árs eru gerðar upp eftir á þegar endanlegar upplýsingar um tekjur ársins liggja fyrir.
Greiðsluáætlun
Í upphafi árs berst lífeyrisþegum greiðsluáætlun fyrir árið. Áætlunin sýnir lífeyrisgreiðslur sundurliðaðar eftir greiðslutegundum og mánuðum. Mikilvægt er að geyma áætlunina.
Endurreikningur
Lífeyrir er reiknaður út og greiddur á grundvelli tekjuáætlana. Að lokinni álagningu skattayfirvalda á hverju hausti eru bornar saman greiðslur sem lífeyrisþegar fengu við tekjur á staðfestu skattframtali. Komi í ljós að of lágar bætur hafi verið greiddar greiðir Tryggingastofnun viðkomandi það sem upp á vantar. Komi hins vegar í ljós að of háar bætur hafi verið greiddar myndast krafa sem Tryggingastofnun innheimtir.
Innheimta
Meginreglan við innheimtu er að ofgreiðsla sé greidd upp á 12 mánuðum frá því að krafa stofnast.
Upplýsingaskylda
Sú skylda hvílir á umsækjendum að veita Tryggingastofnun réttar og nauðsynlegar upplýsingar um persónulegar aðstæður til þess að hægt sé að taka ákvörðun um rétt til greiðslna, fjárhæð og endurskoðun þeirra.
